Því miður virðist upptaka af fundi hafa misfarist, en henni verður bætt inn ef það finnst lausn/lagfæring.
Örn bað félaga að taka laugardaginn 14. mars frá, en þá verður aukafundur vegna komu Glenn Lucas.
Meira um það þegar nær dregur.
Nánar um Glenn hér.
Andri sýndi Woodcut Bowlsaver, sem sker efni innan úr skálaefni, til að nýta hráefnið betur.
Innflutt skálaefni úr birki varð fyrir valinu og úr varð efni í tvær skálar.
Muggi brýnslumeistari fór svo yfir brýnslu rennijárna á Tormek.
17 félagar tóku þátt í janúaráskorun, sem var að renna eitthvað úr tveimur viðartegundum.
Fjölbreyttir og skemmtilegir gripir, t.d. lampar, vasar, kaffibollar, skálar, kertastjakar, klukka og fleira.
Nafn Engilberts var dregið og fékk hann að launum skálaefnið sem unnið var fyrr á fundinum.
Hér eru svo myndir frá fundinum:

















Næsti fundur verður laugardaginn 28. febrúar.