Aðalfundur 2026

Aðalfundur 2026

2 mars, 2026
andri.snaer.th@gmail.com

Aðalfundur Félags trérennismiða á Íslandi - 28. febrúar 2026

Formaður setti fund kl. 10:00 og bauð félagsmenn velkomna til fundar, bar
síðan upp tillögu um að Stefán Rafnar Jóhannsson yrði fundarstjóri og
Engilbert Gíslason ritari fundarins. Báðir hlutu einróma kosningu með
lófaklappi.

Skýrsla stjórnar.
Kæru félagar.
Nú er tæplega ár síðan ég tók við hlutverki formanns og hefur sá tími liðið
ansi hratt.
Þetta hlutverk er alveg nýtt fyrir mér og ég er enn að vinna í að koma því
skipulagi sem fylgir formannsstarfi inn í rútínu.
Ég þakka fyrir traustið og þá hvatningu og hrós sem ég hef fengið, en ekki
síður fyrir ábendingar um það sem betur má fara. Allt á kurteisum og góðum
nótum að sjálfsögðu.
Það má svo ekki gleyma að þakka fyrir það sem vel er gert í starfi félagsins.
Það er ekki sjálfsagt að fólk gefi sinn tíma til að halda starfi félagsins
gangandi.

Fundir síðasta árs voru 5.
Á janúarfundi stökk ég inn vegna forfalla og sýndi pennarennsli. Því var
vel tekið og ég fékk margar fyrirspurnir tengdar því út síðasta ár.
Á febrúarfundi fræddi Bjarni okkur um traföskjugerð, vann svo niður efni
með skarexi og renndi sleif. Ég kynnti svo fyrirkomulag afmælissýningar,
30 daga viðburð í apríl.
Marsfundur var aðalfundur og einnig var sýnt frá Færeyjarferð félagsins
frá 2005.
Á septemberfundi voru framkvæmdir hafnar á okkar ágæta fundarstað. Ég
fór yfir helstu rennijárnin og notkun þeirra. Það var eitt af því sem óskað var
eftir þegar ég sendi könnun á félaga í apríl. Júlíana kynnti góðgerðarverkefni
sem var vel tekið. Hárkollustandar sem Krabbameinsfélagið sér svo um að
koma á rétta staði.
Októberfundur féll því miður niður með stuttum fyrirvara vegna
framkvæmda á fundarstað. Nokkrir félagar fóru fýluferð en ég tók þó við
nokkrum hárkollustöndum úti við götuna, en á fundinum átti að skila inn
stöndum.
Á nóvemberfundi fór Júlíana yfir góða þátttöku félaga í
góðgerðarverkefninu en félagar renndu á fjórða tug hárkollustanda. Bjarni
fór yfir bit og brýnslu rennijárna, með einföldum áhöldum (án sérstakra
brýnsluvéla þ.e.a.s.) Brýnsla var einmitt annað sem var óskað eftir í
fyrrnefndri könnun.
Renniáskoranir voru 2 á síðasta ári og fóru svo í pásu út árið.
Janúaráskorun var fuglafóðrari, sem hefur kannski verið of vandasamt
þema, því aðeins einn tók þátt og var því sjálfkjörinn vinningshafi. Það var
Þórir Kristmundson sem fékk íslenskt hráefni frá Skógræktinni í Heiðmörk.
Febrúaráskorun var matur og Heimir Þór Gíslason vann gjafabréf í brunch
fyrir 2.

Ákveðið var að halda sýningu af tilefni 30 ára afmælis félagsins.
Ég var beðinn um að hafa umsjón með verkefninu og fékk vilyrði fyrir
aðstoð úr nokkrum áttum, en þarf að læra betur að nýta aðstoðina og dreifa
verkefnavinnu. Að öðrum ólöstuðum var Júlíana mjög öflug í þessu
verkefni. Bestu þakkir til þeirra sem hjálpuðu. Viðburðurinn var í samstarfi
við Handverk og hönnun og var tilraunaverkefni af þeirra hálfu. Við fengum
afnot af húsnæði Handverks og hönnunar í allan apríl, án endurgjalds.
Svokölluð yfirtaka og vorum við fyrsta félagið sem fékk þessi afnot.
Við settum upp alvöru vinnustofu, með rennibekk félagsins og Tormek,
ásamt öðrum nauðsynjum sem lánuð voru á vinnustofuna. Vinnustofan stóð
í 15 daga og voru 2 vinnulotur á dag, samtals 30. Vinnustofan var lokuð
almenningi, af öryggis- og vinnufriðsástæðum en rennibekknum var still
upp út í glugga, þar sem gestir og gangandi gátu fylgst með. Gluggasýning.
Vinnustofan var svo send út í streymi, svo allir gætu haft tök á því að fylgjast
með.
Afrakstur vinnustofunnar var svo til sýnis í síðustu viku aprílmánaðar og var
vel sótt.
Á sýningunni stilltum við líka upp nokkrum verkum eftir félaga okkar
Trausta og Ebenezer sem féllu frá fyrr á árinu.

Fréttabréfið gengur vel og fær Engilbert bestu þakkir fyrir sitt starf. Ég vil
hvetja félaga til að senda inn efni í fréttabréfið. Blaðið hefur að jafnaði
komið út 4 sinnum á ári. Ég vil koma hugmynd til ritstjóra að nefna
lokadagsetningar á innsent efni fyrir hvert fréttabréf. Ég held það myndi
virka á mig sem hvatning og áminning og kannski á fleiri.

Ferðaklúbbur trérennismiða fór í sumarferð í fyrra, aftur til skógarbænda,
að þessu sinni í Hrífunes. Karl Helgi og Antonía hafa umsjón með
ferðaklúbbnum, svo ég best viti.
Svo fóru einhverjir félagar á námskeið og á ráðstefnur út fyrir landssteinana.
Ég hef verið að vinna í heimasíðunni okkar þegar tími gefst, það eru helst á
sunnudagsmorgnum þegar aðrir á heimilinu sofa út. Fréttabréfin koma inn á
síðuna, tilkynningar og upplýsingar um fundi, félagaskráin er sýnileg
innskráðum notendum og til stendur að koma inn efni af gömlu síðunni,
eldri myndum og fréttabréfum.
Næsta verkefni er að setja á heimasíðuna fundargerð þessa aðalfundar.
Læt þetta duga frá mér í bili.

Glenn Lucas:
Formaður minnti félagsmenn á að laugardaginn 14.mars verður aukafundur
félagsins haldinn þar sem hinn kunni rennismiður og kennari Glenn Lucas
heiðrar okkur með nærveru sinni og snillibrögðum.

Skýrsla gjaldkera:
Gjaldkeri félagsins Guðmundur Jón Stefánsson (Muggi) flutti því næst
ársuppgjör fyrir árið 2025.
Rekstur félagsins gekk vel á árinu og er tekjuafgangur kr. 166.560, -
Eignir eru samtals kr. 4.218.338, -
Skýrslur formanns og gjaldkera báðar samþykktar einróma af
fundarmönnum.

Kosning stjórnar 2026: Nú fór fram kosning stjórnar kjörtímabilsins 2026 - 2027.
Venjan er að stjórn sé kosin í einu lagi en skipti síðan með sér verkum.

Aðalmenn stjórnar:
Andri Snær Þorvaldsson
Guðmundur Jón Stefánsson - Muggi
Júlíana Ómarsdóttir
Magnús Kristmannsson
Örn Ragnarsson
Varamenn stjórnar:
Bjarni Þór Kristjánsson
Guðmundur G Magnússon
Skoðunarmaður reikninga:
Bragi Finnbogason
Varamaður: Gunnar Valdimarsson
Fræðslunefnd:
Bjarni Þór Kristjánsson
Ritstjórn:
Engilbert Gíslason
Ferðanefnd:
Engilbert Gíslason
Bjarni Þór Kristjánsson
Heimasíðustjóri:
Andri Snær Þorvaldsson
Húsnefnd:
Ómar Bjarnason
Guðmundur J. Thorarensen
Hjálmar Þórarinsson
Tækninefnd:
Sigurður Þór Harðarson
Veitingastjórar:
Sigurður Már Helgason
Varamaður: Magnús Kristmannsson
Sýningarnefnd:
Gunnar Bergþór Pálsson
Heimir Þór Gíslason

Ofangrfeindar tilnefningar samþykktar einróma

Félagsgjöld:
Borin var upp tillaga formanns um að félagsgjöld fyrir árið 2026 verði kr.
5.000,- eins og á síðasta ári og óháð aldri félagsmanns.

Önnur mál:
Gunnar Pálsson velti upp spurningunni hvort rétt væri að hætta rukkun fyrir
kaffi og vínarbrauð á fundum. Sitt sýndist hverjum, engin ákvörðun tekin
um breytingar á kaffisölu fyrirkomulagi. Nokkur umræða varð einnig um
bætur á útsendingu funda í mynd og máli. Málum vísað til stjórar til frekari
skoðunar.

Í lok fundar var dregið um vinningshafa í verkefninu
Formannsáskorun febrúar 2026” en áskorunarverkefnið var að
renna SKÁL, vinningshafi var Rut Eiðsdóttir.

Fundinn sátu 46 félagar. Aðalfundi slitið kl. 10:46

Að fundi loknum var sýndi Brynjólfur Garðarsson rennsli á gengjum í krús
og lok krúsar með sérstöku áhaldi þar um.

Að venju báru veitingamenn félagsins fram rjúkandi kaffi og vínarbrauð.
Veitingamaður dagsins var Sigurður Már Helgson, þekktur fyrir vel útilátnar
vínarbrauðssneiðar ásamt úrvals kaffi.

Fleira ekki gert
Engilbert Gíslason
ritari fundar.

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.