Marsfundur 28.03.26

Marsfundur 28.03.26

22 mars, 2026
andri.snaer.th@gmail.com

Marsfundur verður hann haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 28. mars kl. 10 árdegis.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps), eins og á síðustu fundum er gengið inn bakatil, hjá leikskólanum.

Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar.

Eric kemur og sýnir okkur mjög áhugavert samlímingarverkefni.

Marsáskorun er eitthvað rennt og litað.
Það verður gaman að sjá litrík verkefni á þessum síðasta fundi vorsins.

Allt áhugafólk um trérennsli er velkomið svo takið endilega með ykkur gesti og/eða látið aðra vita af fundinum.
Komið endilega með það sem þið hafið verið að renna undanfarið, líka það sem er ótengt áskorunum.
Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.