Þar sem fundir eru komnir í sumarfrí datt mér í hug að prófa eina áskorun með breyttu sniði.
Nú skora ég á félaga að renna handfang í apríl og/eða maí og senda mér ljósmynd/ir.
Handfangið má vera fyrir hvað sem er og fjöldi renndra handfanga er frjáls.
Nú er ekki krafa um að mæta með áskorunargripi á fund og því ætti búseta félaga ekki að hafa nein áhrif.
Tekið er við myndum til og með 31. maí n.k.
Skemmtilegt væri að fá líka mynd/ir af gerð handafanganna ef hægt er.
Nánari upplýsingar hér á myndinni fyrir neðan:
