Nóvemberfundur - 28.11.26

Nóvemberfundur - 28.11.26

23 nóvember, 2026
andri.snaer.th@gmail.com

Nóvemberfundur verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti, laugardaginn 28. nóvember n.k. kl. 10 árdegis.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps), eins og á síðustu fundum er gengið inn bakatil, hjá leikskólanum.

Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar.

Andri verður við rennibekkinn og rennir jólaskraut.

Nóvemberáskorunin er að renna eitthvað tengt jólunum:

Allt áhugafólk um trérennsli er velkomið svo takið endilega með ykkur gesti og/eða látið aðra vita af fundinum.
Komið endilega með það sem þið hafið verið að renna undanfarið, líka það sem er ótengt áskorunum.
Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.