Aðalfundur - 28.02.26

Aðalfundur - 28.02.26

22 febrúar, 2026
andri.snaer.th@gmail.com

Aðalfundur félagsins verður hann haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 28. febrúar kl. 10 árdegis.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps)

Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. 
Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar. Nokkrir félagar fengu því miður að komast að því á síðasta fundi.

Hefðbundin aðalfundarstörf verða á dagskrá:
• Skýrsla stjórnar.
• Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
• Lagabreytingar ef einhverjar eru.
• Kosningar stjórnar og nefnda.
• Ákvörðun félagsgjalda.
• Önnur mál.
• Fundargerð lesin og borin undir atkvæði.

og svo vonandi smávegis fræðsla að hætti hússins líka.

Febrúaráskorun er skál.
Mjög opið viðfangsefni svo vonandi fáum við að sjá metþátttöku á fundinum.

Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.