Glenn Lucas kemur og verður með sýnikennslu við rennibekkinn.
Laugardagur: Reykjavík
Sunnudagur: Akureyri
Glenn er sérfræðingur í skilvirkni og tækni í öllu tengdu rennsli. Síðan 1995 hefur hann rennt og selt skálar í massavís ásamt því að hafa rekið sinn eigin skóla (Woodturning Study Centre) síðan 2007. Þangað kemur fólk alls staðar að úr heiminum og sækir námskeið í trérennsli.
Þetta er því einstakt tækifæri til að læra af einum virtasta trérennismið okkar tíma.
Nánar um Glenn á heimasíðu hans: GlennLucas.com
Kíkið endilega á eftirfarandi myndbönd frá Glenn, þar sem áhorfendur geta skyggnst inn í daglegt líf atvinnu-trérennismiðsins.
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 1
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 2
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 3
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 4
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 5
A Woodturners Life with Glenn Lucas - Episode 6
Athugið að þessi aukafundur er aðeins fyrir félaga.
Áhugasamir geta skráð sig í félagið á staðnum.
Félögum er velkomið að taka myndir á sýnikennslunni en Glenn biður okkur að taka ekki myndbönd. Fundurinn verður því hvorki tekinn upp né sendur út í streymi.
Aukafundurinn í Reykjavík verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 14. mars kl. 10 árdegis.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps)
Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar.
Innangur er að aftanverðu, eins og á síðustu 2 fundum.
Á sunnudeginum 15. mars verður Glenn með sýnikennslu í Verkmenntaskólanum á Akureyri, kl. 10 árdegis.
Kaffiveitingar í boði félagsins.