Glenn Lucas - upplýsingar og myndir frá sýnikennslu - 14.03.26

Glenn Lucas - upplýsingar og myndir frá sýnikennslu - 14.03.26

17 mars, 2026
andri.snaer.th@gmail.com

Það var húsfyllir á aukafundi félagsins, vegna komu hins írska Glenn Lucas.
Heimsókn þessi hafði góðan aðdraganda.
Ákveðið var á stjórnarfundi haustið 2024 að fá erlendan gest af tilefni 30 ára afmælis félagsins, árið 2025. Glenn Lucas tók vel í hugmyndina og marsmánuður ákveðinn.
Kom svo í ljós að það var mars 2026, en ekki 2025, en námskeið hjá honum eru bókuð langt fram í tímann og allt skipulag eftir því. En það kom ekki að sök!

Mikil ánægja var meðal félaga með sýnikennsluna en um 70 manns mættu og fylgdust með.
Glenn byrjaði á að varpa á tjaldið nokkrum myndum á meðan hann sagði frá sinni sögu; skálaframleiðslu, sérverkefnum, námskeiðum, rennijárnum, kennslumyndböndum, fjarkennslu í covid og ýmsu fleira.
Svo renndi hann ´Dublin viking bowl´ á meðan hann gaf góð ráð. Hafsjór fróðleiks og frábær sýnikennari.

Eftir fundinn keyrði Örn svo með hjónin Glenn og Corneliu norður á Akureyri. Önnur sýnikennsla fór þar fram á sunnudeginum, fyrir um 40 manns.

Hér eru nokkrar myndir frá fundinum, ljósmyndari er ungur áhugaljósmyndari og sonur formanns: Andri Þeyr Andrason
-Fleiri myndir hér-

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.