Janúarfundurinn verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Hraunbergi 8, laugardaginn 31. janúar kl. 10 árdegis.
Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu.
ATH: Vegna framkvæmda er inngangurinn á bakhlið hússins, við leikskólann.
Rauða leiðin er sú vanalega, græna leiðin er sú tímabundna:

• Andri sýnir græju sem sker skálaefni innan úr skálaefni (e: Bowl coring system)
• Muggi sýnir brýnslu rennijárna með Tormek
Fyrsta áskorun ársins er að renna eitthvað úr tveimur viðartegundum.
Allt áhugafólk um trérennsli er velkomið svo takið endilega með ykkur gesti og/eða látið aðra vita af fundinum.
Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.
