Októberfundur verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti, laugardaginn 31. október n.k. kl. 10 árdegis.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps), eins og á síðustu fundum er gengið inn bakatil, hjá leikskólanum.
Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar.
Egill kemur og sýnir okkur vacuum rennsli.
Októberáskorunin er að renna kertastjaka:

Allt áhugafólk um trérennsli er velkomið svo takið endilega með ykkur gesti og/eða látið aðra vita af fundinum.
Komið endilega með það sem þið hafið verið að renna undanfarið, líka það sem er ótengt áskorunum.
Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.