Fyrsti fundur vetrar er laugardaginn 26. september n.k. kl. 10 árdegis.
Fundurinn verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Heimilisfang: Hraunberg 8 (FB Smiðja á Google Maps), eins og á síðustu fundum er gengið inn bakatil, hjá leikskólanum.
Minni á að framkvæmdir standa yfir við trésmíðadeildina og félagar gætu þurft að nýta önnur bílastæði í nærumhverfinu. Athugið þó að gjaldskylda er við bílastæði Heilsugæslunnar.
Fjölmennum á þennan fyrsta fund tímabilsins 2026-27 og takið endilega með það sem hefur komið af rennibekknum undanfarið.
Undirritaður mun standa við rennibekkinn á fundinum en félagar mega endilega leggja höfuðið í bleyti varðandi fræðslu á næstu fundum. Allar hugmyndir og ábendingar velkomnar.
Svo vantar alltaf félaga sem eru til í að sýna eitthvað á fundum, það þarf hvorki að vera flókið né fullkomið.
Allt áhugafólk um trérennsli er velkomið svo takið endilega með ykkur gesti og/eða látið aðra vita af fundinum.
Kaffi, spjall og góður félagsskapur að vanda.