Smelltu hér til að sjá upptöku frá marsfundinum. - fundur byrjar á 11:38
Eric sýndi okkur hvernig hann rennir skál úr flatri spýtu, með því að renna hringi sem má stafla og líma saman. Mjög áhugavert og vert að prófa. Eric var að sýna tæknina við að renna hringina sjálfa en hann mun svo líma þetta saman heima og sýnir okkur svo mynd af skálinni þegar hún er klár.
Hann ákvað að sýna okkur karbít-rennijárn til að vinna efnið niður en sú gerð er orðin ansi vinsæl í Bandaríkjunum. Eric lenti í smá vandræðum með bútjárnin en það reyndist vera of mikið bil milli hvílijárns og spýtunnar, að mestu leyti vegna kubba sem hann sýndi til að halda bútjárninu beinu og í réttri gráðu.
Á vinnustofunni sinni heima notar hann nettari festingar og hvílijárnið kemst því venjulega mun nær.
En til að líta á björtu hliðarnar var þetta fínasta áminning fyrir okkur hin.
Ágætis þátttaka var í marsáskoruninni, að renna og lita.
Mikið af áhugaverðum gripum og mjög mismunandi litaðir.
Nafn Leifs var dregið og fékk hann að launum páskaegg frá Andra.
Þetta var síðasti fundur fyrir sumarfrí en vorferðin okkar er á dagskrá í lok apríl.
Engilbert mun senda tölvupóst á félaga með nánari upplýsingum fljótlega.















