Smelltu hér til að sjá upptöku frá októberfundi - fundur byrjar á 3:40
Egill sá um sýnikennslu fyrir fullu húsi. Mjög fróðlegt og skemmtilegt og vonandi fáum við að njóta þess að fá hann aftur upp á svið við tækifæri.
Egill sagði frá sinni sögu við trérennismíði, frá aski sem hann renndi í barnaskóla og til dagsins í dag.
Við fengum að kynnast rennsli með lofttæmi (vacuum), sem hann notaði til að renna skál inni í annari skál.
Hann sýndi okkur líka græju sem sker efnið í fullkomna kúlu.
Allt þetta keypti hann hjá Simon Hope í Englandi.
Góð þátttaka var í októberáskorun, 16 félagar komi með enn fleiri kertastjaka.
Mjög fjölbreyttir og skemmtilegir!
Nafn Magnúsar Kristmanns var dregið og fékk hann kassa af vel völdu hráefni og nokkar gerðir af kertabollum frá Andra, t.d. til að gera aðventukransa... Einnig var í kassanum góður kubbur af African blackwood frá félaga okkar Eric.
Nokkrar myndir frá fundinum:






















Næsti fundur verður laugardaginn 28. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar þegar nær dregur.