Sumarferð trérennismiða

Sumarferð trérennismiða

5. maí, 2025
andri.snaer.th@gmail.com

FERÐAKLÚBBUR TRÉRENNISMIÐA undirbýr nú sumarferð 2025.
Við endurtökum heimsókn til skógarbænda, áfangastaður er Hrífunes.
Þar er umhverfið einstaklega fallegt og vert að skoða.  Skógarbóndinn og samstarfsmenn hans eru í Giljalandi.  
Tjaldstæðið er við félagsheimilið Tungusel.  Frjálst er að taka með sér gesti.
Ferðin verður frá þriðjudegi 1. júlí til fimmtudags 3. júlí.
Mæting er á tjaldstæðinu við Tungusel.  Kostnaður er hver nótt 2000 kr og möguleiki á rafmagni fyrir 1000 kr á dag.
Hugmyndin er að hafa sameiginlega grillmáltíð þar sem hver kemur með sitt hráefni (rétt eins og fyrir aðrar máltíðir).
Það verður rennibekkur og járn í för (getið líka komið með ykkar eigin járn með ykkur) , gaman væri að menn og konur hefðu einhvert trérennsli með sér.

"Höfum gaman saman" er einkunnarorð ferðaklúbbsins.
Þátttökuskráning:
Antonía S 691-3201
Karl Helgi  897-2280

Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.