Fréttir

25. september, 2024
Septemberfundur - 28.09.24

Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 28. september kl. 10 árdegis. Örn verður við rennibekkinn og ætlar að sýna hvernig piparkvörn er rennd. Látið sjá ykkur, komið með nýlega gripi og segið sögur.Höfum gaman. Siggi sér um kaffið að venju.

Lesa nánar
14. mars, 2024
Marsfundur 2024 seinkar um viku: 06.04.24

Síðasta helgin í marsmánuði er páskahelgin og er fundi því seinkað um eina viku, til 6. apríl 2024. Fundurinn verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 6. apríl kl. 10 árdegis.Eric ætlar að sýna okkur undirbúningsvinnuna við bútarennsli (segmented turning).Áskorun mánaðarins er penni eða annað skriffæri, sjá nánar hér.Kaffi og spjall svo á sínum […]

Lesa nánar
14. mars, 2024
Marsáskorun

Marsáskorunin er penni (blýantar og önnur skriffæri leyfileg) Félagar sem renna og koma með skriffæri laugardaginn 6.apríl fá nafnið sitt í pott.Vinningshafi verður dreginn á staðnum og fær viðkomandi úrval af hráefni í áframhaldandi pennarennsli.

Lesa nánar
15. febrúar, 2024
Aðalfundur - 24.02.24

Aðalfundur Félags trérennismiða á Íslandi verður haldinn í trésmíðadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 24. febrúar kl. 10 árdegis.Dagskrá:Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.Önnur mál. Rennsli eða önnur fræðsla í boði Bjarna. Kaffi og spjall. Rétt er að geta þess að núverandi stjórn félagsins gefur öll kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en öll framboð vel þegin.Eins […]

Lesa nánar
15. febrúar, 2024
Febrúaráskorun

Febrúaráskorunin er eldhúsáhald. Félagar sem renna og koma með eldhúsáhald/áhöld laugardaginn 24.feb fá nafnið sitt í pott.Vinningshafi verður dreginn á staðnum og fær viðkomandi sérvalda bók með skemmtilegum renniverkefnum.Þakkir fær Handverkshúsið fyrir að leggja til vinning mánaðarins!

Lesa nánar
Allur réttur áskilinn. Félag trérennismiða á Íslandi.